Gönguleiðir
Segja má að til séu endalausar gönguleiðir í Önundarfirði og yfir fjallaskörð til annarra fjarða. Hér er að finna gönguleiðir sem við getum mælt með, þessar leiðir höfum við farið ásamt góðu fólki. Við getum leiðbeint okkar gestum um þær gönguleiðir sem við mælum með og sótt göngufólk þegar komið er til byggða í öðrum fjörðum.
Einnig viljum við benda á heimasíðuna Vestfirðir.is og heimasíðuna hjá Vesturferðum , þar sem fleiri gönguleiðir á vestfjörðum eru tíundaðar.
Smellið á kortin eða myndirnar til að stækka
1 - Gengið á Mosvallahorn um KálfabanaGöngutími: 5-6klst, Legnd, Hækkun: 700mGengið er beint upp frá Kirkjubólsbænum þar til komið er á gamlan gönguslóða sem liggur upp í Kálfabana.Þegar komið er upp í Kálfabanann er stefnan sett á Mosvallahornið, gengið er upp skriðurnar og er svo komið upp á Mosvallahornið. Við blasir svo Önundarfjörðurinn . Mikilvægt er að ganga sömuleið til baka niður í Kálfabanann. |
||
![]() |
|
![]() |
|
|
||
2 - Gengið upp í KálfabanannGöngutími: 2-3klst, Lengd , Hækkun: .400mGengið er beint upp frá Kirkjubólsbænum þar til er komið á gamla gönguslóða sem liggur upp í Kálfabanann. |
||
![]() |
![]() |
|
|
|
||
4 - ÁlftafjarðarheiðiGöngutími: 5 - 6 klst, Lengd: 15 kmHækkun: 200m Frá Seljalandi eru stikur sem vísa leiðina upp í skarðið. Eins eru nokkrar vörður þegar komið er upp á hjallann og yfir skarðið |
||
|
|
|
|
|
|
||
3 - Önundarfjörður til Ísafjarða, gengið um Korpudal upp Þverdal yfir til EngidalsGöngutími: 6-8klst, Lengd: ?? km, Hækkun: 780mHér er video frá gönguleiðinni Þetta er forn leið sem innfjarðar bændur nýttu til að reka fé til slátrunar á Ísafirðir. Gengið er inn Korpudal og inn fyrir Þverá, henni er svo fylgt upp í Þverdalinn. Gengið er upp úr Þverdalnum að austan verðu og tekur þar við vörðuð leið niður Engidalsfjöllin. Gott er að ganaga að Nónhornsvatni sem er uppistöðulón fyrir virkjun Orkubús Vestfjarða og fylgja vatnslögn virkjunarinnar niður í Engidalinn að stövarhúsi virkjunarinnar. |
||
|
|
![]() |
|
|
|
||
5 - HólsdalurGöngutími: 3-4 klst, Lengd: 15 km, Hækkun:200m Fyrir sunnan bæinn Hól í firði eru fallegir dalir sem gaman er að skoða. Gengið er upp frá bænum og upp með Hólsánni. |
||
![]() |
![]() |
|
|
|
||
6 - HesturGönguími: 5-7 klst ,Lengd: 14 km, Hækkun: 700 m Inn fyrir botni Önundarfjarðar er gríðalega fallegt og gaman að staldra við um stund. Þar er skemmtileg gönguleið upp á fjallið Hest. Best er að hefja gönguna frá veginum undir Hestinum og ganga inn dalinn við rætur fjallsins. Auðvitað ræður göngufólkið hversu langt það fer, en fótfimir linna ekki göngunni fyrr en komið er upp á fjallið í 700 metra hæð |
||
![]() |
![]() |
|















