Áhugaverðir staðir

Staðir sem vert er að skoða í nágrenni Kirkjubóls.

 

Staðsetning bæjarinns gerir það að verkum að stutt er að sækja helstu perlur og áhugaverða staði á norðanverðum Vestfjörðum.

Dynjandi

Ein helsta náttúriperla vestfjarða í u.þ.b. 1 klst fjarlægð frá Kirkjubóli. Þetta er alveg tilvalin staður til að heimsækja með nesti og njóta náttúrunar.

Dynjandi

Flateyri

Á sumrin eru sýningar á vegum Minjasjóðs Önundarfjarðar í gömlu bókabúðinni, Hafnarstræti 3-5. Íbúð kaupmannshjónanna við hlið verslunarinnar er einnig til sýnis. Opið frá kl. 14:00 til 17:00 og eftir samkomulagi (Jóhanna, Gsm: 864-2943)

 

Handverkshópurinn Purka selur minjagripi og sér um sýningar og varðveislu Alþjóðlega brúðusafnsins, Hafnarstræti 11. Opið er eftir hádegi frá kl. 13:00 til 17:00 alla daga yfir sumartímann. Kaffihús hefur verið starfrækt í sömu húsakynnum undanfarin sumur (Guðmunda, S: 456-7710 Gsm: 866-4642).

Félagið Hús og fólk hefur unnið að sögu- og menningartengdum verkefnum og eru nú 16 söguskilti víðs vegar um þorpið. Hægt era ð fá afnot af mp3 spilara í N1 söluskálanum, ganga milli skiltanna og hlíða á efni tengt húsum, fólki og atburðum á Flateyri sem lesið er af Elfari Loga Hannessyni, leikara.

flateyri

Ljósmynd Guðrún Pálsdóttir- www.blossi.is

Það tekur u.þ.b 15 mín að keyra til Flateyrar frá Kirkjubóli

 

Ísafjörður

Ísafjörður er fjölmennasti byggðakjarni Vestfjarða. Bærinn stendur á Eyri við Skutulsfjörð, en byggðin teygir sig einnig upp í hlíðar Eyrarfjalls. Frá Ísafirði er boðið upp á siglingar um Djúp og inn í friðlandið á Hornströndum. Í bænum er einnig að finna hverskyns afþreyingu, svo sem kajakleigu, golfvöll, púttvöll og margar frábærar gönguleiðir rétt við bæjardyrnar.
Skíðasvæði Ísfirðinga eru í Tungudal og á Seljalandsdal og teljast með þeim bestu á landinu. Í bænum er einnig gömul og notaleg innisundlaug þar sem gott er að láta líða úr sér ferðaþreytuna.

Ísafjörður er í 25 mín fjarlægð frá Kirkjubóli.

 

 

 

Skrúður í Dýrafirði

Jurta- og trjágarðurinn Skrúður, rétt innan við Núp í Dýrafirði, var formlega stofnaður 7. ágúst 1909, enda þótt upphaf hans megi rekja nokkur ár lengra aftur. Þessi dagur varð fyrir valinu vegna þess að þá voru liðin rétt 150 ár frá því að kartöflur voru fyrst settar niður á Vestfjörðum að undirlagi séra Björns Halldórssonar í Sauðlauksdal. Séra Sigtryggur Guðlaugsson prófastur að Núpi réðst í gerð matjurta- og skrúðgarðsins í tengslum við ungmennaskólann að Núpi. Skrúður nær yfir 2500 fermetra svæði. Þar eru hundruð trjáplantna og jurta, en flóran hefur þó nokkuð breyst frá dögum séra Sigtryggs. Matjurtir hafa vikið fyrir fjölærum blómjurtum og runnum. meira um Skrúð

Það tekur u.þ.b. 20 mín að keyra frá Kirkjubóli til Skrúðs

Skrúður

 

Hrafnseyriwww.hrafnseyri.is

Fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar. Þar er safn sem er tileinkað honum einnig kaffisala er á staðnum. Opið yfir sumartímann frá afmælisdegi hans, 17. júní ár hvert.

Hrafnseyri er í u.þ.b. 45 mín fjarlægð frá Kirkjubóli.

 

Vigur- www.vigur.is

Vigur er er næststærsta eyjan í Ísafjarðardjúpi. Hún er fyrir mynni Skötufjarðar og Hestfjarðar, um 2 km á lengd og tæpir 400 m á breidd. Vigur er talin vera með eitt stærsta æðarvarp á landinu og því töluverð dúntekja. Áætlað er að um 80 þúsund lundar séu í eyjunni á sumri hverju, en einnig er mikið af teistu og kríu. Eina kornmyllan á Íslandi er í Vigur frá árinu 1840. Íbúar eyjunnar bjóða ykkur velkomin með afslöppuðu og rólegu fasi og þar er sem tíminn standi kyrr. Á gönguferð um eyjuna fá gestir tækifæri til að skoða þúsundir fugla t.d. æðarfugl, lunda og teistu. Að henni lokinni er boðið upp á veitingar í Viktoríuhúsi. Ferðir í Vigur eru frá Ísafirði daglega frá mið júni til lok ágúst ár hvert eða skv. óskum hópa. Ísafjörður er í 25 mín fjarlægð frá Kirkjubóli.

 

20090830-dsc_2664

 

Bolafjall

Fyrir þá sem langar upp á vestfirskt fjall en en hafa ekki tíma eða krafta þá er tilvalið að keyra uppa á Bolafjall. Bolafjall er 638 metra hátt fjall fyrir ofan Bolungarvík. Á Bolafjalli var ein af fjórum ratsjárstöðum sem Ratsjárstofnun rak fyrir hönd varnarliðsins. Ratsjárstöðin á Bolafjalli hóf rekstur 18. janúar 1992 en hefur nú verið lokað. Það liggur brattur akvegur upp á Bolafjall. Vegurinn hefur verið opinn bílum í júlí og ágúst. Ofan á Bolafjalli er rennislétt hrjóstrug háslétta og er þar útsýni til allra átta.

Það tekur u.þ.b 1,5 klst. að keyra upp Bolafjall frá Kirkjubóli.

 

Ósvör í Bolungarvíkwww.osvor.is

Safnið í Ósvör er endurgerð verstöð frá árabátatímanum, ein hin elzta sinnar tegundar á landinu, og áherzla var lögð á að halda henni í sem upprunalegastri mynd.

Í Ósvör er verbúð, salthús, fiskihjallar, sexæringur, dráttarspil, fiskireitur og útihjallar sem gefa staðnum blæ liðinna tíma. Inni við eru munir sem tilheyra árabátatímanum, skinnklæði sjómanna og ýmis verkfæri og munir sem voru nauðsynlegir vermönnum til daglegra nota. Safnvörðurinn í Ósvör er oft í sjófötum árabátatímans og fiskarnir hanga í trönunum.

Það tekur u.þ.b. 45 mín að keyri til Bolungarvíkur frá Kirkjubóli.

Ósvör


Kirkjuból í Bjarnardal - 425 Flateyri - Ísland - Tel: +354 456 7679 - e-mail: info@kirkjubol.is - N 65°58,335 - W23°26,003