Fuglaskoðun

Mikið og gott fuglalíf er í nágrenni bæjarins. Vöðin í Önundarfirði hafa upp á að bjóða kjöraðstæður fyrir vaðfugla þar sem miklar leirur koma upp þegar fjarar út. Fyrir innan vöðin eru miklar mýrar og keldur þar sem vaðfuglarnir halda sig og einnig er þar að finna endur.

Lóa - Goldenplover, photo by Astrid Kant

Lóa - Goldenplover, photo by Astrid Kant

Inn til dalanna er mikið af mófuglum sem hrafn og smyrill eltast við. Einnig má gjarnan sjá Fálka eltast við bráð sína.

Mikið af æðarfugli verpir í firðinum og þegar líður á sumarið má sjá mikið af æðarungum meðfram veginum þegar ekið er yfir fjörðinn. Út með firðinum heldur svo svartfuglinn sig.

Fuglamyndirnar hér á síðunni eru teknar í grend við bæinn af fuglaskoðurunum Ronland Messemaker og Aastrid Kant frá Hollandi sem gistu hjá okkur sumarið 2009

Jaðrakan - Black tailed godwit, photo by Astrid Kant

Jaðrakan - Black tailed godwit, photo by Astrid Kant

Smyrill - Merlin, photo by Ronald Messemaker

Smyrill - Merlin, photo by Ronald Messemaker

Stelkur - Redshank, photo by Astrid Kant

Stelkur - Redshank, photo by Astrid Kant

Kría - Arctic tern, photo by Ronald Messemaker

Kría - Arctic tern, photo by Ronald Messemaker

Lóuþræll - Common snipe, photo by Ronald Messemaker

Hrossagaukur - Common snipe, photo by Ronald Messemaker

Kirkjuból í Bjarnardal - 425 Flateyri - Ísland - Tel: +354 456 7679 - e-mail: info@kirkjubol.is - N 65°58,335 - W23°26,003