Kajak siglingar
Meðal vinsælustu staða fyrir sjókajaksport hafa verið Vestfirðir og við Breiðafjörðinn.
Önundarfjörðurinn er tilvalinn til kajaksiglinga, hvort heldur sem það eru byrjendur eða lengra komnir ræðarar. Nálægðin við náttúruna er stór hluti af upplifuninni.
Kajakróður á fallegu síðsumarkvöldi er upplifun sem er engu lík, enda jafnast ekkert á við kyrrðina, frelsið og friðinn sem fylgir því að fara um fallegan fjörð fyrir vestan. Ekki er óalgengt að selir og smærri hvalategundir syndi við hlið bátanna þegar róið er um fjörðinn. Innar í firðinum er sandfjara þar sem hægt er að gleyma sér daglangt. Á sólríkum dögum má sjá nokkurn fjölda fólks busla þar í sjónum.
Grænhöfði kæjakleiga á Flateyri skipuleggur ferðir fyrir hópa og er vinsælt í lengri ferðum að taka land einhversstaðar við fjörðinn þar sem safaríkar steikur bíða á grillinu eða kaffihlaðborð. Allt eftir óskum hvers og eins
jens@snerpa.is
Símar: 456 7762 – 863 7662 – 861 8976




