Gisting
Gistiheimilið er allt nýlega innréttað og ber merki gamalla og nýrra tíma. Við leggjum áherslu á hlýlegt og heimilislegt
andrúmsloft. Gestirnir okkar hafa aðgang að eldunaraðstöðu og setustofu, þar sem hægt er að horfa á sjónvarpið, komast á internetið eða kíkja í bækur til afþreyingar. Við leggjum áherslu á að litla bókasafnið okkar hafi úrval af bókum sem tengjast svæðinu, sögu fjarðarins og fólksins þar. Það mun svo vonandi stækka með tíð og tíma.Boðið er upp á gistingu í uppbúnum rúmum í fimm 2ja manna herbergjum. Herbergin eru mjög rúmgóð og er eitt þeirra með kojum að auki og getur því vel rúmað fjóra gesti. Hægt er að fá herbergi í I, II og III flokki, skv. skilgreiningu Ferðaþjónustu Bænda.



