Sumarið er komið.

Nice hat:) Jam making

Þá er sumarið loksins komið og allt komið á fullt hérna í sveitinni. Búið er að stækka og setja nýja möl á bílaplanið og allt orðið rosalega flott hérna úti. Um daginn var sultugerð og var búin til rabbabarasulta úr rúmlega 4 kílóum af rabbabara. Hún heppnaðist mjög vel og er búið að baka margar kökur með sultu. Það var meira að segja einn túristi frá Bandaríkjunum sem var hérna í nokkra daga og kenndi húsfreyjunni að búa til ameríska pie sem var rosalega flott og góð.

Fyrstu tvær vikurnar í júní var glampandi sól og blíða en núna síðustu daga er búið að sjást lítið í þessa gulu. Spáin segir að hún fari nú að sýna sig aftur á næstu dögum.

Rabbabara pie

Þjóðarátak í landkynningu !

Sjáið myndbönd og fleira skemmtilegt á heimasíðu vegna þjóðarátaks í landkynningu !

Flateyri - Rafræna leiðsögukerfinu vel tekið

Rafræna leiðsögukerfinu „Flateyri: hús og fólk“ var vel tekið í sumar. Í vor voru sett upp sextán söguskilti víðsvegar um Flateyri með teikningum Ómars Smára Kristinssonar og grunnupplýsingum um hvern stað. Samhliða þessu var

Ljósmynd Guðrún Páls

Flateyri - Ljósmynd Guðrún Páls

tekinn saman texti, sem var leiklesinn af Elfari Loga Hannessyni og hljóðritaður í Tanknum á Flateyri. Um er að ræða 17 kafla sem settir hafa verið á MP3 spilara sem fólk getur leigt gegn tryggingargjaldi. „Verkefnið gekk mjög vel en við eigum eftir að taka saman tölur um hversu góð nýtingin var. Allir þeir sem ég hef heyrt í voru mjög ánægðir með þetta, það eina sem hefði mátt fara betur var að fólk gerði sér ekki grein fyrir því að það gæti leigt spilarana í sólarhring eða lengur og taka sinn tíma í að hlusta á upplesturinn. Margir héldu að einungis væri hægt að leigja spilarana í klukkutíma eða álíka stuttan tíma, en svo er ekki“, segir Guðrún Pálsdóttir sem er hugmyndasmiður verkefnisins ásamt Jóhönnu Kristjánsdóttur.

Guðrún segir þær stöllur vera mjög ánægðar með hvernig til tókst. „Hvergi annars staðar á landinu er leiðsögukerfi af þessu tagi og okkur finnst fyrsta sumarið hafa gengið vel. Við vonumst til að næsta sumar getum við boðið upp á upplesturinn á tveimur tungumálum til viðbótar, ensku og þýsku.“

tekið af www.bb.is

Sandkastalar byggðir í Holtsfjöru

Sankastalakeppni í Holti 2008 Ljósm Magnús H Guðmundsson

Sankastalakeppni í Holti 2008 Ljósm Magnús H Guðmundsson

Hin sívinsæla sandkastalakeppni, sem haldin hefur verið árlega í Holtsfjöru í Önundarfirði um verslunarmannahelgina í meira en áratug, verður haldin á laugardag klukkan 14. Keppnin hefur notið gríðarlegra vinsælda síðastliðin ár enda hentar ljós sandur Holtsfjöru einstaklega vel til sandbyggingagerðar. Ljóst er að erfitt verður að toppa keppnina í fyrra en gríðarlega góð þátttaka var í sandinum það ár. Um 500 manns voru í fjörunni þegar mest var og alls voru sköpuð 84 listaverk, hvert öðru glæsilegra. Menn eru þó bjartsýnir á að keppnin í ár verði enginn eftirbátur enda er búist við mikið af fólki á svæðinu og á veður að vera kjörið til sandkastalagerðar, skýjað, hægt og stillt. Líkt og síðustu ár verða veitt vegleg verðlaun fyrir flottustu listaverkin.

 

Sandkastalakeppnin er kjörin afþreying um verslunarmannahelgina sem allir geta tekið þátt í. Börn, fullorðnir, afar og ömmur eru því hvött til að kíkja í Önundarfjörðinn á laugardag og sýna verkfræðikunnáttu sína í sandi.

tekið af www.bb.is

Kirkjuból úr lofti

Um miðjan mánuðinn gisti  hjá okkur góður hópur fólks og var þar með í för ljósmyndari sem hefur verið að þróa aðferð að taka myndir úr flugdreka. Hann fór einn morguninn að æfa sig á þessu áhugamáli og vorum við svo heppin að fá að njóta afraksturins. Hér má sjá heimasíðu ljósmyndarans

 

Fuglaskoðun í nágrenni Kirkjubóls

 Astrid Kant og Ronald Messemaker fuglaskoðarar gistu hjá okkur í sumar. Þau sendu okkur þessar myndir sem þau tóku í nágrenni Kirkjubóls.

 Smellið á myndirnar til að stækka þær.

Sól og Sumar

Undanfarna daga hefur veðrið leikið við okkur hér í Önundarfirðinum. Það hefur verið meira segja mögulegt að baða sig í firðinum.

jokull

Hér er hann Jökull með  Innfjörðinn í baksýn.

Jóhönnu Kristjánsdóttur minnst

johannakristjansdMinningarsteinn um Jóhönnu Kristjánsdóttur frá Kirkjubóli í Bjarnardal í Önundarfirði, verður afhjúpaður á sunnudag kl 15, samhliða því að gróðursettur verður reyniviðarlundur til minningar um hana. Jóhanna fæddist að Kirkjubóli 7. maí 1908 og átti þar heima mestan hluta ævi sinnar. Hún andaðist 4. júni 2008, réttra hundrað ára. Jóhanna var ræktunarkona og stjórnaði gróðursetningu í mörgum skógarreitum og er Þverárgerði einn af þessum skógarreitum.

Þar var byrjað að planta um 1950 af Skógræktarfélagi Vestur Ísafjarðarsýslu. Þangað átti Jóhanna margar ferðir, enda reiturinn við túnfótinn á Kirkjubóli. Þar var ungu fólki kennd gróðursetning og umhirða trjáa. Frændfólk Jóhönnu hefur haft frumkvæði að verkinu í samvinnu við heimamenn. Það er ósk og von vina og ættmenna Jóhönnu, að sem flestir komi á athöfnina í Þverárgerði á sunnudaginn til að heiðra minningu Jóhönnu og drekki svo saman “skógarkaffi” að athöfninni lokinni.

af www.bb.is

Botn Önundarfjarðar fallegastur

Þetta birtist í Fréttablaðinu í dag 30.maí 2009

Vestfirðirnir þykja fallegastir

hestur

Mynd tekin í Þverdal, bærinn Hóll í baksýn

Íslendingar ætla að notfæra sér það sem þeir eiga í sumar - landið sitt. Samkvæmt fréttum ætla 90 prósent landsmanna að ferðast innanlands. Júlía Margrét Alexandersdóttir ræddi við yfir fjörutíu manns úr ýmsum áttum og fékk það til að velja fallegasta stað landsins, skemmtilegasta ferðastaðinn, bestu vegasjoppuna og eftirlætis tjaldstæðið.

1. Vestfirðir Ýmsir firðir voru nefndir á Vestfjörðum og flestir nefndu Vestfirði í heild, sem fallegasta stað landsins. Önundarfjörður skoraði hátt ásamt Arnarfirði.

1. Vestfirðir

Ýmsir firðir voru nefndir á Vestfjörðum og flestir nefndu Vestfirði í heild, sem fallegasta stað landsins. Önundarfjörður skoraði hátt ásamt Arnarfirði. Botn Önundarfjarðar þótti þar sérstaklega fagur. Önundarfjörður liggur milli Dýrafjarðar og Súgandafjarðar. Há og hvöss fjöll eru til beggja handa, fjörðurinn er mjög sæbrattur og fegurð hans nokkuð hrikaleg. Þónokkur ógurleg slys hafa orðið í firðinum og má nefna sjóslys er varð árið 1812 þegar 50 menn fórust á sjö skipum. 16 ekkjur urðu eftir í sveitinni.

Read more »

Vorverkin á Kirkjubóli

Um helgina var undirbúningur fyrir sumarið settur á fullt. Það var verið að mála og pússa, spá og spekúlera. paintSteini smiður var með í för og nýttum við okkur það duglega. Fyrstu gestir sumarsins eru væntanlegir 23. maí.

dfgdgd

Kirkjuból í Bjarnardal - 425 Flateyri - Ísland - Tel: +354 456 7679 - e-mail: info@kirkjubol.is - N 65°58,335 - W23°26,003