Hópar - ættarmót

Hægt er að hafa samband ef um er að ræða gistingu fyrir hópa. Við bjóðum upp á afnot af húsinu, með eða án dsc_0411oþjónustu. Hægt er að tjalda á grasflötum umhverfis bæinn. Í lundinum okkar bjóðum við upp á okkar rómuðu grillveislur og ef veðrið skyldi svíkja, þá eigum við stóra skemmu til að leita í.

Tilvalið fyrir ættarmót, starfsmannahópa, saumaklúbba, gönguhópa, og öll önnur skemmtileg ferðalög. Við getum séð um máltíðir eða boðið upp á eldunaraðstöðu.

Hvernig hljómar veiðiferð eða berjamó og sultuferð sameinað í skemmtilegu umhverfi og notalegu húsnæði á fallegu síðsumarskvöldi ?? Ættarmót, þar sem við sjáum um matinn fyrir fjölskylduna á laugardagskvöldinu en þið einbeitið ykkur að því að vera saman og hafa gaman.

Vantar þig ef til vill rólegan stað til að sinna sérstökum verkefnum eða viltu senda starfsmennina í skemmtilega starfsmannaferð.

Svo má ekki gleyma skíðaferðunum, en hið frábæra skíðasvæði Ísfirðinga er einungis í fárra mínútna akstursfjarlægð frá Kirkjubóli.

Hafið samband og fáið verðtilboð!

Kirkjuból í Bjarnardal - 425 Flateyri - Ísland - Tel: +354 456 7679 - e-mail: info@kirkjubol.is - N 65°58,335 - W23°26,003