Flateyri - Rafræna leiðsögukerfinu vel tekið

Rafræna leiðsögukerfinu „Flateyri: hús og fólk“ var vel tekið í sumar. Í vor voru sett upp sextán söguskilti víðsvegar um Flateyri með teikningum Ómars Smára Kristinssonar og grunnupplýsingum um hvern stað. Samhliða þessu var

Ljósmynd Guðrún Páls

Flateyri - Ljósmynd Guðrún Páls

tekinn saman texti, sem var leiklesinn af Elfari Loga Hannessyni og hljóðritaður í Tanknum á Flateyri. Um er að ræða 17 kafla sem settir hafa verið á MP3 spilara sem fólk getur leigt gegn tryggingargjaldi. „Verkefnið gekk mjög vel en við eigum eftir að taka saman tölur um hversu góð nýtingin var. Allir þeir sem ég hef heyrt í voru mjög ánægðir með þetta, það eina sem hefði mátt fara betur var að fólk gerði sér ekki grein fyrir því að það gæti leigt spilarana í sólarhring eða lengur og taka sinn tíma í að hlusta á upplesturinn. Margir héldu að einungis væri hægt að leigja spilarana í klukkutíma eða álíka stuttan tíma, en svo er ekki“, segir Guðrún Pálsdóttir sem er hugmyndasmiður verkefnisins ásamt Jóhönnu Kristjánsdóttur.

Guðrún segir þær stöllur vera mjög ánægðar með hvernig til tókst. „Hvergi annars staðar á landinu er leiðsögukerfi af þessu tagi og okkur finnst fyrsta sumarið hafa gengið vel. Við vonumst til að næsta sumar getum við boðið upp á upplesturinn á tveimur tungumálum til viðbótar, ensku og þýsku.“

tekið af www.bb.is

Kirkjuból í Bjarnardal - 425 Flateyri - Ísland - Tel: +354 456 7679 - e-mail: info@kirkjubol.is - N 65°58,335 - W23°26,003