Sandkastalar byggðir í Holtsfjöru
Hin sívinsæla sandkastalakeppni, sem haldin hefur verið árlega í Holtsfjöru í Önundarfirði um verslunarmannahelgina í meira en áratug, verður haldin á laugardag klukkan 14. Keppnin hefur notið gríðarlegra vinsælda síðastliðin ár enda hentar ljós sandur Holtsfjöru einstaklega vel til sandbyggingagerðar. Ljóst er að erfitt verður að toppa keppnina í fyrra en gríðarlega góð þátttaka var í sandinum það ár. Um 500 manns voru í fjörunni þegar mest var og alls voru sköpuð 84 listaverk, hvert öðru glæsilegra. Menn eru þó bjartsýnir á að keppnin í ár verði enginn eftirbátur enda er búist við mikið af fólki á svæðinu og á veður að vera kjörið til sandkastalagerðar, skýjað, hægt og stillt. Líkt og síðustu ár verða veitt vegleg verðlaun fyrir flottustu listaverkin.
Sandkastalakeppnin er kjörin afþreying um verslunarmannahelgina sem allir geta tekið þátt í. Börn, fullorðnir, afar og ömmur eru því hvött til að kíkja í Önundarfjörðinn á laugardag og sýna verkfræðikunnáttu sína í sandi.
tekið af www.bb.is




